Námsmannaráðgjöf býður háskólanemendum upp á eftirfarandi þjónustu:
- Námsmannaráðgjöf aðstoðar og leiðbeinir háskólanemendum við lokaritgerðir sínar (BA/BS/MA/MS/M.Ed.) fyrir skil til leiðbeinanda og lokaskilin. Í þeirri vinnu felst að aðstoða og ráðleggja varðandi efnistök ritgerðar og uppsetningu samkvæmt reglum deilda/skóla. Heimildaskrá ritgerðarinnar er jafnframt lagfærð í samræmi við nýjustu heimildaskráningarreglur og þær samkeyrðar við tilvísanir ritgerðarinnar. Ritgerðin er prófarkalesin fyrir skil til leiðbeinanda og síðan fyrir lokaskilin.
- Afritun rannsóknarviðtala.
- Aðstoðar háskólanemendur sem eiga annað móðurmál en íslensku.
- Heimildaskrá og tilvísanir lagfærðar samkvæmt nýjustu heimildarskrárreglum.
- Aðstoðar við að útbúa töflur og myndir.
- Að setja ritgerðir inn í sniðmát deilda/skóla.
- Aðstoðar við ritgerðir, verkefni og rannsóknaráætlanir.
Frekari upplýsingar fást á netfanginu [email protected] og einnig er hægt að senda skilaboð í gegnum þessa heimasíðu.